Ji dúdda....

27.04.2007 15:11:02 / gigja

Jæja...jæja

Já þá er skólinn byrjaður á ný...TÖLVUNARFRÆÐI...nú þarf ég loksins að sanna hversu mikið tölvunörd ég er.... 

Síðasta helgi var hress....og mælikvarðinn á hressleikann verður mældur í líðan minni síðustu viku!;o)   2 einkunnir eru komnar í hús og lentu þær réttu megin við 5-una eins og ávallt.....Voru reyndar tvö erfiðustu prófin sem ég hef farið í á ævi minni (já..nei ekki reyndar erfiðari en samræmdaprófið í stæ, í FS! ;o)) þannig að ánægjan með það er í hámarki. Nú er bara að bíða og sjá hvernig restin fer, ekki það að ég hafi nokkrar áhyggjur þar sem þau próf gengu töluvert betur en hin. 

Ok...yfir í allt annað...ég er sko “auglýsingabæklingafíkill” ég elska þegar það kemur stórt hefti frá Ikea eða rúmfatalagernum..ég skoða þessa bæklinga fram og til baka og finn auðvitað fullt fullt sem ég ætla mér að kaupa. Á endanum hendi ég bæklingnum og eftir það gleymast allar frábæru vörurnar á frábæra verðinu en kaupsýkinni hefur verið svalað!!;o) Mjög sniðugt mæli með þessu!  

EEEENNN....nú eru kosningar og þá rigna inn helv#$”$%#%#” bæklingum frá stjórnmálaflokkunum þar sem þeir lofa sjálfan sig og allt það sem þeir standa fyrir.   

NOTE: ÉG ÞOLI EKKI PÓLITÍK......stjórnmálamenn eru ekki mínar týpur..............og svo kemur á daginn að þeir eyðileggja fyrir mér ánægjuna að skoða auglýsingabæklinga! Því þegar ég hleyp að bréfalúguna í von um 18 bls. sumarbæklingur frá Rúmfatalagernum sé að skríða inn sé ég ekkert nema fésið á stjórnmálamönnunum prentuð á milljón mismunandi bæklinga!!!  Já þetta er það sem drífur á daga mína og hugsanir þennan daginn.....eigið góða helgi!! 

Antipólitíkusinn og nr.1 fan af Rúmfatalagersbæklingum kveður!




» 5 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 15:21:25 / gigja

Ég á afmæli í dag...ég á afmæli í dag...

Jæja....dagurinn er runnin upp.....ég er orðin 20 OG eitthvað....úfff......
Vildi bara láta vita að ég væri lífi...er búin í prófum og
er að njóta þess að vera í smá fríi. Er í fríi fram á næsta mánudag.
En hef ekkert að segja þar sem ég bloggaði fyrir 2 dögum...
Kv. Öldungurinn og Ofurbloggarinn...Gígja!

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 14:19:17 / gigja

Læri lær......

Já...það sem maður gerir ekki þegar maður á að vera að læra....!

  Er að fara í mitt seinasta próf á morgun...stærðfræði. Ætti að vera þægilegt ef hann Siggi verður sanngjarn, en þar sem það hefur ekki farið mikið fyrir sanngirni kennara í þessari prófatörn þá á maður nú von á öllu. 

Sit hérna með bækurnar ofan á tölvunni en ótrúlegt en satt þá tekst mér að hripa þetta á lyklaborðið.   

Ég á afmæli á miðvikudaginn og verður þá tjellan 21 árs. Sem sagt formlega komin á þrítugsaldurinn. Ég ætla nú ekkert að halda upp á þennan áfanga. En þar sem mamma á náttla afmæli sama dag ætlum við kjarnafjölskyldan að skella okkur í göngutúr í nágrenni Reykjavíkur og fara út að borða... 

Helgin verður líka spennandi þar sem árgangurinn minn í Grunnskóla Grindavíkur ætlar að hittast í verkalýðshúsinu á laugardagskvölið og hita upp fyrir hið árlega körfuboltaball í Grindó....þarf ekki að hafa meiri orð um hvort það verði fjör.... 

En þetta er nú helst að frétta af mér....líður eiginlega hálf skringilega...tíminn er svo fljótur að líða eitthvað og ég næ ekki alveg að fylgja með...er næstum búin með eitt ár í háskóla án þess að vita af því......áður en ég veit af verður komið sumar og ég farin að ráðleggja fólki hvað þau skulu gera við peningana sína og fara í fullt, fullt af útilegum...  

Ummm....hlakka til... 

En ....lærandi næstum afmælisstelpan...kveður!:lol:


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 15:51:13 / gigja

Ofurblogg!!

Jæja, ég er nú alveg að standa mig í stykkinu hérna!!;o) Er búin að vera mana mig upp að blogga alla síðustu viku en þetta er bara svo erfitt!! Ég hreinlega veit ekki um neitt sem ég hugsanlega gæti bloggað um. Auðvitað gæti ég bloggað um það hversu svekkt ég var þegar Ísland tapaði fyrir Dönunum en það er bara svo ótrúlega lummó! Ég gæti líka bloggað um það sem ég hef verið að gera undafarna daga en það er líka lummó!! Hvað er þá til ráða. Skrifa innihaldslaust blogg eins og þetta stefnir í bara til að geta sagst hafa bloggað? Humm...já ég held ég geri það. Þetta er blogg, bloggerí blogg!!

Ofurbloggarinn Gígja Eyjólfsdóttir, sem krefst skoðanna áður en hún bloggar meira!!

(Algjörlega tilgangslaust að blogga ef enginn les það!!!!!)

P.S. Þeir sem luma á góðu umræðuefni, eru tillögur vel þegnar!!

Ætla enda þetta á aðalkeppandanum í X-factor.


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 15:23:57 / gigja

Pistill Jííha!

Jæja, ákvað að skella hér inn einum pistli í tilefni dagsins.

Á nú samt ekkert von á því að fólk fari enn inn á þessa síðu

en ef svo er endilega látið mig vita.

 Árið 2007 gengið í garð og skólinn byrjaður á ný. Jólin runnu ljúflega

 niður hér á bæ enda alltaf gott að komast í smá frí frá lærdómnum

 (eða þá samviskubitinu yfir því að vera ekki að læra).

 Kannski ég rifji upp svona það helsta sem gerðist 2006 og það sem ég ætla að gera 2007:

 

 

 

2006:

  • Byrjaði að vinna hjá Actavis í byrjun janúar og vann þar í næstum 8 mánuði sem liðu alltof fljótt. Sakna ykkar stelpur everyday.
  • Tók þátt í Söngvakeppni framhaldsskólanna og komst í 12 manna úrslit. Ógleymanlegt!!!
  • Varð tvítug!! (Úff, hefði kannski átt að sleppa þessu! Og nei, ég hélt ekki partý!)
  • Keypti mér hústjald og fór í fullt af útilegum. Elska útilegur. Samt er ég á því að maður verður að hafa góðan útbúnað.
  • Fór í ógleymanlega ferð til Spánar “sponseraða” af FS og fjölskyldunni. Og auðvitað var Atli minn með. Vorum fyrst í Barcelona 4 daga og svo í 10 daga í húsinu.
  • Byrjaði í Háskóla, nánar tiltekið í Rekstrarverkfræði.
  • Sunny flutti til Berlínar!! :(
  • Flutti í nýja íbúð. Fékk víðáttubrjálaði!! Svo skemmir ekki að litla sæta Saga mín býr bara fyrir neðan mig.
  • Fór óvænt til Boston rétt fyrir jólin með mömmu, Höllu og Rannveigu. Geggjuð stelpnaferð!
  • Próf, jól og áramót.

 2007:

·         Halda áfram í skólanum.

·         Vera dugleg í ræktinni.

·         Fara í margar útilegur.

·         Vinna

·         Ohh, hélt að það væri eitthvað merkilegt planað árið 2007 en svo man ég ekki neitt.  (Hefði alveg eins getað sleppt þessu!)

 Er hérna heima að bíða eftir landsleiknum. Já, ég er eins og hin 90% af þjóðinni sem fylgist aldrei með handbolta nema þegar “Strákarnir okkar” spila. Og já, ég hef líka allt í einu miklar skoðanir á leikkerfum í handknattleik. Nei, ég meina þetta er ógó fyndið. Örfáar hræður mæta á handboltaleiki hérna heima en svo hafa meira segja 70 ára gamlar ömmur vit á öllum reglum og þess háttar í handbolta þegar sjálft landsliðið er að keppa. Mér finnst þetta allavega fyndið og tek þátt í þessu og er stolt af því. Áfram “Strákarnir okkar”!

 En allavega einum pistli landað á árinu. Vonandi verða þeir fleiri!

 Kærar kveðjur,

Brjálaði handboltaáhugamaðurinn sem hefur ekkert fyrir stafni á árinu 2007.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 11:20:09 / gigja

Halló Hafnafjörður!

Sæl, og blessuð.

Ég var að spá í að láta fylgja þessu bloggi súrefnisgrímu. En ég kann ekki að setja myndir inn í þetta ekki nógu mikið tölvunörd í mér. En allavega hér eru leiðbeiningar við andateppunni sem þið fáið við opnun síðunnar og sjáið að það er komið blogg:

Anda inn og anda út, anda inn og anda út.

En ég vildi bara láta vita af mér hér. Ég sit hér í tíma í Rekstrarverkfræði og er að fræðast um muninn á stjórnendum og leiðtogum sem er mjög áhugavert. Allt gengur vel í skólanum. Ég var líka að flytja í stærri íbúð í síðustu viku og er svona að leggja lokahönd á að koma mér fyrir. Spánarferðin var skrautleg og skemmtileg. Sunny er flutt til Berlínar, sakna hennar mikið. Vísindaferð í Alcan með suðurnesjabúunum í skólanum, verður örugglega fjör. Svo sumarbústaðurinn nýji á laugardaginn!

Jæja komið gott, ætla að halda áfram að glósa!

Kær kveðja, verðandi Rekstrarverkfræðingurinn sem verður vonandi góð blanda af stjórnanda og leiðtoga.


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 13:41:32 / gigja

Sama gamla tuggan.................

Halló, halló!

Mér var litið yfir þessa ágætu pistla sem þessi síða hefur að geyma og þeir innihalda flestir afsakanir um bloggleysi, margra ára upprifjanir og síðast en ekki síst fregnir af því að ég sé byrjuð aftur í ræktinni. Í tilefni þess þá ætla ég að halda uppteknum hætti og byrja á því að afsaka bloggleysi síðustu mánaða, rifja upp það sem gerðist á þeim tíma og upplýsa ykkur um það að ég er að byrja aftur í ræktinni.

Nr.1: Elskulegu lesendur síðunnar. Ég Gígja Eyjólfsdóttir vil biðja ykkur innilega afsökunar á bloggleysinu. Ég gleð ykkur með þeim fréttum nú að ég hyggst bæta ykkur þetta upp að hluta með einum og einum pistli.

Nr.2: Úff þetta gæti orðið langt. (Reyni að vera orðstutt!) Kláraði seinustu önnina mina í FS og útskrifaðist þaðan, 17. desember sl. Daginn eftir gerði minn heittelskaði sér lítið fyrir og lagðist á skeljarnar og þar með er ég trúlofuð. Flutti í mina eigin íbúð rétt fyrir jólin í 101 Reykjavík. (Allir velkomnir í heimsókn) Svo voru auðvitað jól og áramót með öllu tilheyrandi. Þann 4.janúar.2006 hóf ég störf hjá Gæðaeftirlitsdeild Actavis hf. og er þar enn. Í haust er svo stefnan tekin á Rekstrarverkfræði í Háskóla Reykjavíkur, en ég fékk einmitt samþykkta umsóknina í síðustu viku. (Mikið gaman, mikið fjör ;o))

Nr.3: Ég er sem sagt búin að ákveða að nýta mér íþróttastyrk Actavis og skella mér í ræktina og koma slöppum vöðvum í gott form. (Sársauka tímabil framundan!!;o/)

En að öllu gamni slepptu er allt gott að frétta af okkur skötuhjúunum í höfuðborginni. Lífið er yndislegt hér og getum við ekki beðið eftir sumrinu. Ekki spillir heldur fyrir að litli frænka býr hér hinum megin við götuna og er ekki leiðinlegt að kíkja í heimsókn til hennar og foreldra hennar því, auðvitað er ekki til sætara eða skemmtilegra músaskott í öllum heiminum.

Ég sit hér í rjómablíðunni undir sæng með horið niður á höku. Ömurlegt að vera lasin í svona veðri. En mamma er á leiðinni að heimsækja litlu stelpuna sína og veita henni félagsskap, þar sem unnustinn er í próflestri. En veikindin hafa þó leitt eitt gott af sér en ég hef fundið þessa listrænu hlið mina sem miðillinn hér um árið talaði svo mikið um. En ég sem sagt skellti mér til grænu systranna og splæsti í málningu og striga og hef setið hér við listir í tvo daga og er bara helv…ánægð með útkomuna. Er að gæla við að opna listasýningu.

Jæja, mamma er komin….horandi, listmálarinn sem reis upp frá dauðum.


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.09.2005 15:54:46 / gigja

Einu sinni enn, koma svo, þið getið þetta stelpur!!

Jæja gott fólk, allir ferskir og komnir í helgarfrí! Það er ég allavega! Þessi vika búin að vera bara asskoti góð sko “Ameríkasnext” byrjað attur mar þá er ég hamingjusöm! En já mar er víst búin að smitast af þessari útlitsdýrkun og farin að skella sér gymið öðru hvoru og ekkert nema gott um það að segja, nema hvað að ÞVÍLÍKAR HASSBERUR (já ok harðsperrur) hef ég ekki vitað um á minni löngu ævi!!! Ég er nánast búin að vera ógöngufær og tala ég nú ekki um klósettferðirnar sem hafa verið sárar því nógu erfitt er að setjast, hvað þá að setjast á hvassar klósettbrúnarnar með auman rass! Mæli hreinlega með því að finna sér FRÖNSK gólfklósett við þessar aðstæður þvílíkur er sársaukinn! En það þýðir ekkert að gefast upp þó að móti blási og verð ég mætt galvösk í Lífstíl eftir helgi! (Common mar má nú taka sér helgarfrí eftir erfiða viku!) En nóg um þetta í bili, skelltum okkur í bíó í gær á alveg hreint magnaða mynd “Strákana okkar”. Mér fannst hún drullugóð!! Þar mátti einmitt líta á nokkur typpi og meira að segja sum hver grindvísk, já ég er að segja satt! En allavega snilldarmynd mæli með henni!

 

 “Á ég að sjúg’ann á þér?” –Strákarnir okkar.

 Góðar stundir, útlitsdýrkandi tippatogarinn!


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 17:26:49 / gigja

Light night!!

Ljósanótt var ágæt, kíktum niður í bæ á menninguna áður en haldið var heim í hið árlega ljósanæturmatarboð á Borgarveginum! Eftir að hafa skálað og úðað í sig kræsingum var haldið niður í bæ á ný. Þar sá ég eina langdregnustu flugeldasýningu sem ég hef á ævi minni séð!!!! Þar var einnig á ferð Hollywood-sprengjur frá honum Clint sem er nebbla BESTI vinur þeirra ljósanæturfélaga og eitthvað fóru upplýsingarnar um þær forgörðum og héldu margir að þarna væri einhver hætta á ferð en nei, nei bara “Clintarinn” að þakka fyrir gestrisnina! ;o) Eitthvað var fólk eikkað slappt þetta kvöld og enduðu við skötuhjúin ein á djammið niður í bæ sem var alveg ágætt þrátt fyrir langa, leiðinlega og skrautlega göngu heim! ;o) Gærdagurinn fór svo í afslöppun og afmæli hjá Jóhönnu frænku. Saga sætasta var þar að sjálfsögðu og fékk að koma með okkur heim til ömmu og afa í Laut þar sem hún lærði að segja Gígja og fylgdi því mikil hamingja hjá eiganda þessarar síðu!!

 

Jæja nóg í bili.......over and out  fyrir hönd Clint Eastwood, Gígja bomber!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.09.2005 11:54:51 / gigja

Er á lífi!!!

Hæ,hæ! Jú ég er á lífi það er víst! Það er bara svo langt síðan ég skrifaði að ég man ekki einu sinni hvað ég hef verið að bardúsa! En nú ætla ég að reyna að "updeita" reglulega það sem á daga mína drífur, en tíminn er takmarkaður núna þannig að........................TO BE CONTINUED!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2005 00:44:41 / gigja

KIM KIM KIM KIM...........holy spirit of the guacomoly!!!

.........Jæja þá er árið 2005 gengið í garð og vil ég byrja á því að bjóða ykkur gleðilegt ár og þakka fyrir það liðna. Árið 2004 hefur aldeilis verið viðburðaríkt. Hvorki meira né minna en búin að flytja 2-svar sinnum og þar með talið úr frá æskuheimilinu mínu og nú bý ég splunku-nýrri húsaröð sem kallast ekkert minna en Melrose Place og geri aðrir betur!! Íbúar þessarar fyrrnefndu húsaraðar hafa nú hafist handa við tökur á framhaldsþáttunum og munu þættirnir vera sýndir á Nefsýn nýrri sjónvarpsstöð okkar Grindjánanna. Í þáttunum munu koma fram ýmsar skemmtilegar persónur eins og t.d. “The Godpoolson family” Þar sem Sigrún Godpoolson fer á kostum sem the old women trying to be young and Eyfi Godpoolson eiginmaður hennar sem er eigilega hinn eini sanni Hasselhoff seríunnar.

.........En nóg komið af bulli því nóg er á að taka við “afturlíting” ársins. Í ágúst gerðist líka sá merki atburður að ég varð föðursystir hvorki meira né minna!!! Jahá....þann 25. ágúst fæddist lítil stúlka og er hún auðvitað fallegasta og besta barnið í öllum heiminum og fékk hún nafnið Saga. (En í guðanna bænum ekki hafa hátt um þetta því ef það fréttist að “The Godpoolson” hjónin séu orðin amma og afi þá er voðinn vís!) Þetta tvennt er nú eigilega minnistæðast af þessu ári og held ég að ég gangi alveg sátt frá þessu herrans ári. Held líka að næsta ár bjóði upp á ýmislegt bitastætt svo sem nýja húsið rís, Spánarferð í júní og svo auðvitað er mar nú að fara útskrifast.

.........Að öðru leyti er allt gott að frétta jólin voru góð og eins og segi alltaf, mitt fólk stendur alltaf fyrir sínu í pakkamálum!! Takk fyrir mig e´sku krúttípúttin mín!!! Brenna á jóladag KREI-C!!! (Var ekki þarna ég lofa!) Jólaball með Sálinni á öðrum jóladag klikkar aldrei (þrátt fyrir smá flensu...), Áramótin góð, mikið grín, mikið gaman en gamanið stutt!! (Gólfið mjúkt og gott...híhíhí). Að sjálfsögðu þeyttist mar upp Víkurbrautina á hestvagni “líke always” og skólinn byrjaður og verður tekið á því.

 

Over and out you KREI-C bastards.........Kimberly Godpoolson

                                                                 652 Melrose Place

                                                                 240 Grindavík


» 109 hafa sagt sína skoðun

01.12.2004 21:24:12 / gigja

1.desember!!!

Já, í dag er 1. desember og jólin nálgast óðfluga!!  Púff,  ég er eigilega í sjokki hvað tíminn er fljótur að líða! Ætli mar verði ekki orðin fimmtug áður en mar veit af. Sé mig fyrir mér, komna með gráu lokkana og í prjónapeysunum með barnabörnnin mér við hlið!! Jiii, dúdda!!!

Hef ekki meira að segja, vildi bara sanna að ég gæti haldið út blogginu mínu!!! (Sumir hafa ekki trú á sumum!!)

Kveðja, fimmtugi próflesarinn sem er alltaf á seinustu stundu!!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.11.2004 22:20:39 / gigja

Halló, halló!!

Já, það er satt!! Prinsinn kom loksins og vakti grindvísku prinsessunni upp frá sínum langa dvala með heitum og blautum kossi!!:)

Hef gengið með þá hugmynd í maganum að láta heyra frá mér hér á síðunni vegna þessarar vakningar og ætla hér með fyrirfram að biðja lesendur um að vera þolinmóðir í minn garð þar sem ég lofa engu. Ekkert pistill á dag eða neitt svoleiðis. Það er mikið að gera eftir svona langan dvala. Er t.d. enn að bursta á mér tennurnar eftir hinn langa svefn.

Svo eru auðvitað jólin að ganga í garð með öllu sínu stressi og hinum svokallaða jólaundirbúningi sem þeim tilheyrir. Svo virðist hann oft einskis verður þegar jólin eru liðin og finnst mér þessi hátíð vera alltof stutt fyrir minn smekk. En ég er í góðum málum hvað undirbúning varðar búin að kaupa allar jólagjafir og komin í jólafrí 8. desember. Takk fyrir, góðan daginn. Jólagjafakaupin gerði ég í henni stóru Ameríku fyrr í mánuðinum og þrammaði innan um ekta stóra ameríska rassa í kanalandinu í heila 3 daga!! Í jólafríinu ætla ég svo að skella mér í piparkökubakstur svona einu sinni fyrir utan það að slappa af!!!!!

Over and out, Grindvíska prinsessan frá Kanalandi jólanna!!


» 122 hafa sagt sína skoðun

16.06.2004 00:16:22 / gigja

Ó boj ó boj ó boj!!!!

Allt í lagi, ég held að ég þurfi lyf við bráðarkaupsýki!!!! Verslunareigendur eru farnir að hringja á auglýsingastofur og auglýsa eftir stúlku með sítt rautt hár og gjörsamlega slást um að fá að bjóða mér í verslanir sínir fyrir það eitt að veifa nokkrum fjólubláum fyrir nokkur stykki af eikkerjum fatatuskum og fótaleppum..........ef einhver veit hvar þessi lyf finnast þá endilega hafið samband í síma 8xx-xxxx!!

Kaupæðis-kjúklingurinn!!!


» 122 hafa sagt sína skoðun

07.06.2004 23:33:58 / gigja

Sjóarinn síkáti!!!!

                           

Jæja, þá er ég loksins búin að sanna það að það er líf í Grindavíkinni! Fólk sem kennir sig við eikkerja höfuðborg mættu galvösk í Sæluvíkina á laugardagskvöldið og urðu víst að játa sig sigraða í þessum rökræðum því þau skemmtu sér alveg einkar vel!!! Sjálf Sjávarperlan var áfangastaðurinn og var hreint út sagt TROÐIÐ þarna enda allir sjóarar bæjarins mættir til að tjútta við söng og hljóðfæraleik mannanna í svörtu fötunum! Að sjálfsögðu varð myndavélin eftir heima eins og vanalega en ég ætla hér með að auglýsa síðuna hennar Ágústu og hjá Gulla bró því þau eru alltaf svo asskoti dugleg að taka myndir. Go Ágústa og Gulli !!! (Tenglarnir eru hérna til vinstri!!)

Over and out!!!


» 124 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Snilldar leikir!